16. janúar 2010 klukkan 11:27

Gummi P var á ferð í Reykjavíik ásamt móðurinni og Hólmavíkurfjölskyldunni. Það vildi svo skemmtilega til að á meðan hersingin var stödd í Smáralind var verið að taka þar upp eitt atriði fyrir Spaugstofuþátt helgarinnar. Þau horfðu á atriðið og höfðu gaman af. Símon hafði á orði við Gumma P að nú þyrftu þeir að passa að missa ekki af Spaugstofunni næstkomandi laugardag. "Já, en veistu hvað við erum ótrúlega heppnir? Við þurfum ekki að horfa á alla Spaugstofuna núna, við erum nefnilega búnir að sjá eitt atriðið!!"
Ástríður Einarsdóttir
01. nóvember 2009 klukkan 22:09

Fjölskyldan sat við matarborðið. Gummi P tók til máls. "Mamma stundum þá líður mér svo illa alltaf þegar einhver úr fjölskyldunni minni gerir eitthvað heimskulegt." "Nú, eins og hvað?" Sagði móðirin sem kannaðist ekki við að sú staða kæmi oft upp. "Eins og þegar þú ætlaðir að taka bensín og sagðir manninum hvað hann ætti að setja mikið bensín á bílinn, og hann var ekki einu sinni að vinna á bensínstöðinni!!"
Ástríður Einarsdóttir
03. september 2009 klukkan 23:12

Ísar dembdi sér af fullum krafti í heimanámið sem fór þannig fram að hann skoraði á móður sína í margföldunarspil. Spilið gekk út á það að færa átti spilapening ýmist áfram eða aftur á bak um nokkra reiti eftir margfeldi talnanna sem upp komu á tengingana. Framan af átti Ísar góðan leik, geystist áfram og skildi móður sína eftir í reykskýi. Síðar fór að síga á ógæfuhliðina hjá krónprinsinum sem þurfti að fara aftur á bak nokkuð mörg köst í röð. Á endanum gat hann ekki orða bundist. "Demit, það er þvílíkt að lækka hjá mér fasteignagildið... eða kannski raunvirðið!!
Á leið til Reykjavíkur voru sem oftar ýmsar vangaveltur viðraðar í aftursætinu. Gummi P spurði á miðri leið: "Mamma, hver bjó eiginlega til Hvanneyri?" Mamman hugsaði sig um "Ja, það er kannski ekki svo gott að segja... Líklega landnámsmaðurinn sem ákvað fyrstur að búa til bæ þar. "Núúú.... aglavega hélt ég kannski að það hefði verið Haukur sem býr á bak við okkur"
Ástríður Einarsdóttir
29. ágúst 2009 klukkan 21:44

Fjölskyldan var á leiðinni á Akranesið. Gummi P var að reyna að vera sniðugur og tjaldaði í þeim tilgangi nokkrum velvöldum fúkyrðum sem ekki eru prenthæf. Ísari var mjög misboðið og sagði "GUMMI PÉTUR, hvað ertu eiginlega að segja? Ég segi nú bara Guð hjálpi þér!"
Gummi Pétur var mjög spenntur fyrir því að byrja aftur í skólanum. Hann spratt á fætur fyrst daginn, klæddi sig á ljóshraða í fötin sem hann var búinn að velja kvöldið áður og leggja snyrtilega við fótagaflinn á rúminu sínu, burstaði tennur, greiddi hár og skokkaði léttur á fæti út í skóla. Næst spurðist til hans þegar hann svipti upp útihurðinni og sveif inn eftir skóladaginn, jafn brosmildur og um morguninn. Ekki leið á löngu áður yfir hann rigndu klassískar spurningar foreldranna.
-Var ekki gaman í skólanum?
-Jú, mjög gaman
-Og hvernig líst þér á nýja kennarann þinn?
-Ha? Er ég með nýjan kennara?
Ástríður Einarsdóttir
04. ágúst 2009 klukkan 21:31


Fjölskyldan skellti sér í sumarfrí og hafði meðal annars viðdvöl á tjaldstæðinu á Hólum í Hjaltadal. Þar kynntust drengirnir nokkrum krökkum og Gummi P tók að sér að lóðsa þeim um tjaldstæðið og kenna þeim sitt hvað um hvernig maður ber sig að í tjaldútilegum. Krakkarnir sem voru allir nokkru yngri horfðu andaktugir upp til Gumma P sem endaði töluna á því að segja, "Ég er nefnilega einn af þessum frægu á Hvanneyri!!" bætti svo við augnabliki síðar "Ég er sá sem er alltaf berfættur!"
Á Hólum var farið í sund. Það var um kvöldmatarleytið og dásamlega sósulykt lagði frá veitingarstaðnum við hliðina yfir sundlaugina. Sundlaugargestum varð tíðrætt um hvað það hlyti að vera gott að borða þar. Símon hnippti í mömmu sína og sagði, "mamma ég held bara að þú ættir að fara að bjóða pabba út að borða" Stína spurði hvers vegna, "æi, bara svo honum líki betur við þig" sagði Símon. Þá sagði Ísar, "Símon, þú ert svo rómantískur ".
Síðar í ferðinni var verið að hlusta á útvarpið og í útvarpsfréttunum var fjallað um Möltubúa. "Möltubúar!", heyrðist þá í Gumma P. "Ætli þeir spili alltaf "möltípleijer" í tölvuleikjum?"
Ástríður Einarsdóttir
26. júní 2009 klukkan 23:17

Fjölskyldan var á leiðiinni heim af Skaganum. Í útvarpinu hljómaði lag og allir tóku undir, hver með sínu nefi. Svo var skellihlegið og mamman sagði "Enn heppilegt að við skyldum öll lenda í sömu fjölskyldunni". "Nú?" hváði Ísar. "Æi bara við pössum eitthvað svo vel saman", sagði mamman. "Hvernig værum við eiginlega ef við værum í einhverri annarri fjölskyldu?" spurði Gummi P. "Kannski værum við norsk!" lagði Ísar til. "Já!!! Hvernig heldurðu að það væri? þusaði Gummi P, "þá héti ég kannski Guðmundur Pétur Guðmundsson Norberg!! "
Í sömu ökuferð glumdu seinna útvarpsfréttir. Bara svona þessar hefðbundnu kreppufréttir og þar á meðal ein sem hljómaði eitthvað á þessa leið:
Skattbyrðin á hverja fjögurra manna fjölskyldu í landinu mun aukast að meðaltali um 90 þúsund krónur á mánuði, þegar skattahækkanir í aðgerðaáætlun stjórnvalda verður komin að fullu til framkvæmda...
Ísar leit upp úr Kapteinn Ofurbrók- bókinni og setti í brýnnar, "Vá maður... eins gott að við erum ekk lengur fjögurra manna fjölskylda!!"
Ástríður Einarsdóttir
08. maí 2009 klukkan 19:05
Sagan var í stólnum sínum fyrir aftan mömmuna þegar hún byrjaði allt í einu að hlægja og flissa. Ísar tók undir með systur sinni, hló og hló, og sagði svo. "Mamma, kannski er hún að hlægja af því þú ert með svo stórann rass".
Ástríður Einarsdóttir
07. maí 2009 klukkan 01:07
Fjölskyldan dvaldi í vellystingum hjá Hólmavíkurakademíunni um síðustu helgi. Stína frænka var að leggja drög að rúgbrauðsbakstri þegar gestina bar að garði. Hún var búin að sanka að sér talsverðum fjölda af tómum mjólkurfernum til að baka brauðið í og hafði raðað þeim upp til þerris vítt og breytt um eldhúsið. Gummi Pét staðnæmdist skyndilega þegar hann kom inn í eldhúsið, horfði í forundran á uppstillingarnar, vék sér svo að stóra bróður sínum og sagði svo lítið bar á "Ísar, ég held þau ættu að róa sig aðeins í mjólkurfernunum...."
Ísar hafði skipulagt umfangsmikla leit að lestrarbókinni sinni og kallað til liðsauka úr Gumma Péturs herbergi. Eftir metnaðarfullar en fljótafgreiddar leitartilraunir leystist leitin upp í eltingaleik og hlátrasköll. "Þið eruð nú meiri kjánarnir", sagði mamman sem hafði einhvers staðar hrasað um varaforða af þolinmæði. "Ég er enginn kjáni" sagði Ísar, "ef ég væri kjáni þá myndi ég ekki vita hvað 100 + 100 eru!!" "Nei, og heldur ekki hvar lestrarbókin þín er" svaraði mamman og glotti út í annað. "Æi. mamma" sagði Ísar þá "Þú getur alltaf svarað svo vel!!"
Ástríður Einarsdóttir
27. apríl 2009 klukkan 15:53

Foreldrarnir stóðu prúðbúnir í forstofunni á leiðinni að heiman. "Hvert eruð þið að fara?" Spurði Gummi Pét. "Við erum að fara að kjósa." "Nú, hvað eruð þið að kjósa?" "Nýja ríkisstjórn" svaraði mamman. "Ha, er þessi strax orðin vanhæf?"
Dag einn lá frekar illa á mömmunni. Hún var búin að vera að ónáða Gumma Pét reglulega með alls konar skömmum og tuði. Gummi Pét tók yfirleitt lítið undir og svaraði fáu. En eftir að hafa setið undir þessu dágóða stund sagði hann, "Ég held það sé best að aglir á þessu heimili tali ekki neitt meira í dag, það er bara svo erfitt fyrir mig að læra þegar það er talið svona mikið og svo getur maður líka orðið heyrnarlaus ef það er verið að tala svona mikið við mann."
Ástríður Einarsdóttir
23. apríl 2009 klukkan 00:56
Gummi Pétur situr tímunum saman og teiknar og teiknar.
Mamma: Mér finnst svo gaman að sjá hvað þú ert mikið fyrir að teikna þessa dagana...
Gummi P: Mamma! Kannski er það bara útaf því að sálin mín langar ótrúlega mikið að ég verði listamaður!
Ástríður Einarsdóttir